Halló halló.......það er allt að
gerast.....
J
Hvort sem þið trúið því eða
ekki þá er ég að blogga. Ég veit ekki af hverju.....ætli ástæðan sé
ekki sú að ég get ekki sofnað, og að ég er búin að skoða allar
bloggsíður og annað rusl á netinu sem ég gæti hugsanlega
skoðað.
Þannig er mál með vexti að
það eru allir að djamma hérna í Hafnarfirðinum nema ég. Ég er alls
ekki þekkt fyrir það að stunda svoleiðis
óskunda.....hhmmm!!!
Fór til Ívars og Telmu áðan, þar sem
þau sátu og sötruðu og hlustuðu á Eminem og Hemma Gunn til
skiptis...svaka fjör. Er ekki frá því að hann Ívar minn hafi
verið orðinn ansi léttur. Hann sem sagt talaði non-stop í ca.
2 tíma um....einkennisklæðnað DHL, bækurna “Öldin okkar”,
Krumma í Mínus, og já Bubba Morthens. Þetta voru ansi
áhugaverðar einræður....haha
J
Hann var góður með
epplasnafsflöskuna og Whiský-ið.
Fór á tónleika með Bjögga Halldórs í
dag. Þrusu góðir tónleikar. Eina leiðinlega við tónleikana
var að fólkið í kringum okkur var svo súrt að það hálfa hefði
verið meira en nóg. Þau dilluðu sér ekki einu sinni, og þegar
ég og mamma í góðum gír vorum farnar að syngja með og vorum í
svaka fjöri fengum við ekkert nema skrilljón augu sem litu á
okkur eins og við værum hálfvitar. En við létum það ekki á
okkur fá heldur jukum við bara hávaðann. Mamma fór meira að
segja að stappa niður fótum...haha
J
Algjör
snillingur!!!
En sagan er nú ekki öll sögð. Þegar
við komum út eftir tónleikana fannst okkur eins og það
vantaði eitthvað á bílinn.... og viti menn, það var búið að
stela ÖLLUM koppunum af bílnum. Ég missti andlitið. Hversu
þægilegt er það að stela bara því sem manni vantar. Ekkert
smá lákúrulegt.....maður getur nú ekki annað en orðið dáldið
svekktur og reiður. En það þýðir lítið að velta sér upp úr
þessu. Ég bauðst til þess að fara á stjá í kvöld og finna
einhverja fína koppa á bílinn.....en mamma afþakkaði
það
J
hí hí. Þannig að
aumingja bílinn er nakinn að neðan.
Jæja núna er körfuboltatímabilið að
hefjast á fullum krafti. Maður er að skríða í form svona hægt
og bítandi. Fyrsti leikur er á fimmtudaginn, sem þýðir að ég
verð úti að skokka fram að því. Erum að fara að spila á
Reykjavíkurmótinu við KR....hlakka bara til. Það vill svo til
að við erum komnar með frábæran mannskap og magnaðan
þjálfara. Þetta er allt að smella. Svo er það bara að negla
deildina
J
Hef fulla trú á
okkur....
Jæja...þetta ætti að vera
komið nóg í bili.....ætla ekki að blogga út mér allt
vit.
Take
care.....Hjaltey.....a.k.a. H-Mac
p.s. Ástæðan fyrir þessu
bloggi er eiginlega sú að ég varð miður mín yfir því að hún
Hrund skyldi henda mér út af listanum hjá sér....þarf að
endurheima heiðurinn aftur. Auk þess er engin færsla eftir mig
sjáanleg á síðunni okkar....GLATAÐ!